22.02.2012 07:17

Köttur sleginn úr tunnu.

Akureyringar hafa lengi haldið upp á öskudaginn.
Og þegar okkur ber að garði um borð í einhverjum togurum bæjarbúa virðist sem engin undantekning hafi verið gerð á þeim skemmtilega sið að "klæða sig upp á"  í tilefni dagsins. Það virðist í hið minnsta vera raunin þegar kíkt er fram í hásetaklefa einhvers af Akureyrartogurunum. 
Sumir af þeim mönnum sem þar má sjá virðast hafa séð ástæðu til að klæða sig öðru vísi en venjan er með dæmigerð sjóklæði. 



                                                                     Öskudagur um borð? (C) Mynd: Lárus Halldórsson
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Eitthvað svipað virðist nú vera upp á teningnum þegar litið er fram á dekk. Þar eru menn með alvæpni að því er virðist og til alls líklegir.
Nú gæti eitt verið í stöðunni:

Allir vita að það er gamall siður hjá þeim Akureyringum að "slá köttinn úr tunnunni" og ekki er óvarlegt að ætla að þessir vígbúnu karlar séu að halda til "vígvallarins" að lemja tunnuna í tilefni öskudagsins. Hins vegar er ekki alveg sjálfgefið að skipskötturinn láti plata sig í einhverja tunnu og því þarf að ná honum fyrst. Handsama kvikindið.



                                                                                       Til alls líklegir (C) Mynd: Lárus Halldórsson
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Væntanlegt "fórnarlamb" sem ætlað er að fara í tunnuna verst fimlega öllum tilraunum þegar reynt er að fanga það.  Þar er barist af fullri hörku og má segja að þar hafi verið slegist eins og "hundur og köttur" í bókstaflegri merkingu,- eða þannig sko!



                                                              Slegist eins og hundur og köttur (C) Mynd: Guðl. Guðlaugsson

P.s. Þegar "sleginn er köttur úr tunnu" er e.t.v. notast við úrsláttarjárn, sem er þá jafnframt mikið notast við á togurum. Úrsláttur! Er þaðan komið heitið á járninu fræga um borð í togurunum? Ha?
Er heitið upphaflega frá Akureyri? Og þá komið frá þeim gjörningi að murka lífið úr ketti í tunnu?
Ég bara spyr! Ha?
Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 39
Flettingar í gær: 578
Gestir í gær: 267
Samtals flettingar: 145041
Samtals gestir: 53453
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 03:13:13