17.05.2012 00:56
17.maí - Þjóðhátíðardagur Noregs.
Í Noregi er haldið upp á Þjóðhátíðardaginn í dag - 17.maí.
Vissulega væri full ástæða til að skoða eina lögskráningu á nýjan nýsköpunartogara í dag, en það verður að bíða til morguns. Ekki hægt að sleppa þessu tækifæri þar sem til er ágæt mynd hér til birtingar sem "passar" við daginn í dag,- enda myndin að þessu sinni tekin úti í Noregi. Og nú er maí um stundir en myndefnið er ekki lengur Maí, eða þannig sko!
Umfjöllun gærdagsins bar með sér að b.v Maí GK 346 frá Hafnarfirði muni hafa verið tekinn af íslenskri skipaskrá þann 16.maí árið 1977, eða fyrir réttum 35 árum síðan. Og þá vaknar sú spurning í framhaldi þess hvenær fyrrum Maí GK hafi verið skráður í Norska skipaskrá? Ekki kann síðuritari að "fletta" slíku upp í netheimum, en eflaust má finna þetta einhvers staðar.
Hins vegar er gaman að láta sig dreyma um að það hafi verið í beinu framhaldi af afskráningu hér innanlands, og ef svo er að þá mætti segja að Norðmenn hafi fengið góða "þjóðhátíðargjöf" þann 17.maí árið 1977, í formi 1000 tonna togara frá Íslandi. Vissulega þó ekki gjöf í þess orðs merkingu því auðvitað borguðu frændur okkar eitthvað fyrir skipið.
En í það minnsta að þá héldu íbúar Noregs Þjóðhátíðardaginn hátíðlegan daginn eftir að hið mikla skip b.v Maí GK 346 frá Hafnarfirði var afskráð hér.

Harstad í Noregi (C) Mynd: Ingvi Einarsson
Það er vert að benda lesendum á lunninguna á fyrrum b.v Maí GK. Sjá hvernig tekið er úr lunningunni á kafla til móts við spilgrindina. Sjómenn vita tilganginn með þessu. Enn fremur sést vel á báðum síðum hvernig lunningar eru teknar niður við togspilið. Slíkt fyrirkomulag var ekki á hinum þremur systurskipunum Íslensku.
16.05.2012 00:32
Tekinn af skipaskrá fyrir 35 árum.
Þann 16.maí árið 1977, eða fyrir réttum 35 árum síðan, mun b.v Maí GK 346 frá Hafnarfirði hafa verið tekinn af íslenskri skipaskrá. Togarinn var seldur til Noregs, en Maí hafði komið nýr til landsins á árinu 1960, fyrstur fjögurra systurskipa sem smíðuð voru í V- þýskalandi fyrir Íslenska útgerðaraðila.
Á árinu 1977 átti Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, B.Ú.H, skuttogara í smíðum í Noregi sem hlaut nafnið Maí og sama einkennisnúmer og forverinn - GK 346.
Eins og lesendur síðunnar hafa eflaust séð - einhverjir hið minnsta - að þá er hér reynt að "dreifa" efninu og vaða úr einu í annað. En nú verður ekki hjá því komist að geta b.v Maí GK 346 aftur á morgun, fimmtudag.

Maí GK 346 (C) Mynd: Lárus Halldórsson
15.05.2012 06:56
Ásókn til metorða.
Í gær, 14.maí var afmælisdagur forseta vors. Og það minnir okkur e.t.v á að nú eru kosningar til embættis forseta Íslands framundan. Framboð til embættisins eru nú þegar orðin sjö talsins þegar hér er komið sögu. Margur sem lítur hýru augu til þessa embættis.
Með nokkru sanni mætti segja að sá hinn sami og hlýtur hnossið í kosningunni til embættis forseta Íslands, hafi náð ansi hátt í metorðastiganum. Sjálfskipuðum metorðastiga.
Og talandi um metorðastiga má auðvitað til sanns vegar færa að þeir séu víða þessir "stigar" sem klífa þarf til að ná settu marki.
Á myndinni hér að neðan er engu líkara en að menn standi í einhvers konar "stiga" - eða hvað? Er þetta hinn marg um talaði metorðastigi sem sjá má hér á skipssíðunni?? Í það minnsta að þá "vatnar" upp undir höku á þeim sem neðstur er - og takið eftir - því ofar sem dregur í "stiganum" fjölgar þeim sem eru með hendur í vösum. Dæmigert?

Lagst að bryggju (C) Mynd: Haraldur Blöndal
Hann er kaldur úti nú um stundir og sólarmynd því vel þeginn eftir að hafa virt fyrir sér eina kuldalega mynd hér næsta á undan þessari.
14.05.2012 08:06
Afmæli forseta Íslands - 14.maí.
Í dag, 14.maí er afmæli forseta Íslands - Herra Ólafs Ragnars Grímssonar. Forsetanum eru hér færðar árnaðaróskir í tilefni dagsins.
Ólafur Ragnar ólst sem kunnugt er upp á Ísafirði og af því tilefni skulum við halda okkur við Ísafjörð. Við pollinn svokallaða.
Og úr því að úti fyrir geisar vetrarríki þegar þetta er ritað, verður myndin að vera í samræmi við veðráttuna. Kuldaleg. Jafnframt því sem að viðfangsefnið verður einnig að vera ísfirskt, eins og forseti vor. Enn fremur tengt síðutogara.
Það höfum við þá einhvern veginn svona:
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Myndin að þessu sinni er komin vel til ára sinna og trúlega tekin um miðjan fjórða áratug síðustu aldar. Sjötíu og fimm ára gömul hið minnsta.
Um slíka mynd er margt hægt að segja og ef t.d kíkt er aftur á bátadekkið má þar sjá í kofaræksni sem í var loftskeytaklefi togarans. Þarna kúldraðist loftskeytamaðurinn einn löngum stundum og það var ekkert sældarlíf þegar sjóirnir gengu inn yfir afturskipið. Stendur kofinn af sér næsta sjó? Og svo er að sjálfsögðu bátapallur á togaranum Hávarði Ísfirðing ÍS eins og öðrum samtíma togurum.
Takið eftir reykháfnum og hvernig hitinn nær að halda reykháfnum alveg íslausum. Á forkantinum má vel sjá í sitt hvorn skjöldinn við brúarhornin og eftir öllu að dæma eru þetta dæmigerðir Selby-skildir.

Á pollinum á Ísafirði (C) Úr safni Steindórs Árnasonar
Áletrun sú sem er á myndinni er látin halda sér enda ekki ástæða til annars!
13.05.2012 08:29
Viðhaldsvinna um borð.
Þegar hefðbundinni vetrarvertíð lauk hér á árum áður var mikið um viðhaldsvinnu ýmiskonar sem þurfti að sinna. Enda mikið álag á bátaflotanum á sjálfri vertíðinni og lítið gefið eftir í sókninni. Og því var það nú svo að strax eftir lokadaginn þann 11.maí ár hvert, mátti sjá menn að störfum um borð í bátum við bryggjur víða um land. Bátaflotinn meira og minna allur bundinn við bryggjur. Margt sem þurfti að huga að og mikið um þrif og þá oft í framhaldinu málningarstörf. Gera allt fínt og fágað fyrir sumarið. Máski síldveiðar framundan? Annað úthald í beinu framhaldi af vetrarvertíðinni.
En talandi um málningarstörf um borð í skipum, að þá verður nú að segjast eins og er að ekki sést oft á myndum til sannra togarajaxla með málningarpensil í hönd. Og hvað þá í hafi komandi úr siglingartúr. En það er nú einmitt það sem við skoðum að þessu sinni; Togarasjómaður að mála um borð í skipi sínu og hér er sko alls ekki verið við bryggju. Ó, nei.
Við erum að þessu sinni stödd um borð í austfirskum nýsköpunartogara og árið mun vera 1955. Glöggir lesendur munu sjá á brúarhúsi hvaðan skipið er "ættað." - Og þar sem árið á myndatöku mun vera 1955 er hægt að útiloka einn Austfjarðatogarann, b.v Egil rauða NK 104, sem mögulegan togara þar sem Egill rauði fórst strax í upphafi ársins 1955.
Sem sagt; Nú skulum við finna út hvar togarakarlinn austfirski er að sinna sínum málningarstörfum. Um borð í hvaða togara er maðurinn?

(C) Mynd: Sigurgeir Pétursson
.
12.05.2012 09:33
Hverjir eru mennirnir?
Að gefnu tilefni verður þessi mynd fyrir valinu í myndbirtingu dagsins.
Það er alltaf gaman að spá og spekúlera í staðsetningu á stýrishjóli í brú hvers síðutogara fyrir sig sem hingað voru keyptir, nýjir sem notaðir. Vissulega vantar þó talsvert upp á að myndir frá öllum brúarhúsum þeirra skipa séu aðgengilegar hér.
Myndin að þessu sinni er tekin árið 1953 og er hér greinilegt hvar rattið, stýrishjólið er staðsett. En, það sem vekur forvitni síðuritara er hvort einhver lesenda síðunnar kannist við andlitin á myndinni? Það er vissulega hægt að senda upplýsingar þar að lútandi beint á netfang síðuritara ef vill.
Sem sagt; Kannast einhver við þessa heiðursmenn á myndinni?

Hverjir eru mennirnir (C) Mynd: Einar Einarsson
Ritstjórn er ekki alveg grunlaust um að einhver lesandi síðunnar kannist við myndefnið og máski kemur nafnið á togaranum hér í framhaldinu?
11.05.2012 07:07
Lokadagurinn 11.maí.
Hér er auðvitað ekki um að ræða launauppgjör, heldur eingöngu afla yfirlit og glöggir lesendur sjá strax að einungis var um að ræða eina söluferð þetta ár,1954 og það til þýskalands. Og eflaust er lesendum vel ljóst hvernig ástandið var með söluferðir á þessum tíma.


(C) Skjal: Árni Konráðsson
10.05.2012 10:18
Vantar staðarheiti og skipsnafn.
En að myndinni að þessu sinni: Hvar er þessi mynd tekin og hver er botnvörpungurinn?

(C) Mynd: Guðbjartur Finnbjörnsson
09.05.2012 08:01
Hver er möskvastærðin?
Strax og farið er að skoða þessa mynd sem er frá því á árabilinu 1959-62, staldrar hugurinn fljótt við netið sem sjá má. Möskvastærðin vekur eftirtekt og spurning hversu stórir möskvarnir eru í þessu neti? Er verið að tala um eitthvað í námunda við 85 millmetrana? Hvað segja sérfræðingarnir um þetta?

Ungur togarasjómaður (C) Mynd: Óskar Ólafsson
08.05.2012 06:21
Nýsköpunartogarar prýða frímerki.
Við skulum virða fyrir okkur annað frímerki sem sýnir nýsköpunartogara. Og aftur er það Selby-smíðað skip sem um ræðir.
Togarinn sem prýðir frímerkið að þessu sinni er b.v Bjarni riddari GK 1 frá Hafnarfirði.
Hafnarfjarðartogarinn var smíðaður með hærri reykháf heldur en hafður var á Reykjavíkurtogaranum Ingólfi Arnarsyni RE, sem er á frímerkinu sem birtist hér næst á undan. Þetta má sjá á teikningunum á frímerkjunum, en þó er eitt atriði sem teiknarinn hefur "klikkað" á og spurning hvort lesendur átta sig á muninum sem sjá má á systurskipunum á frímerkjunum?

07.05.2012 09:06
Fyrsta nýsköpunartogarans hefur víða ...
Fyrsta nýsköpunartogarans hefur víða verið gerð skil með ýmsu móti. Eitt af því er útgáfa frímerkis með teikningu af togaranum.
Teikningin er tekin upp úr þekktri mynd af skipinu og gefin út árið 2010 þegar rétt sextíu og fimm ár voru liðin frá samkomulagi um smíði fyrstu nýsköpunartogaranna árið 1945.

06.05.2012 08:29
Sextíu ár frá stórbruna í b.v ...
Í myndbirtingu hér fyrir helgina var nefnt að lyklaborðinu yrði hlíft, en þar sem lesendur síðunnar eru upp til hópa forvitnir (?) að þá verður að bregðast við því og birta hér mynd af botnvörpungi.
Tilefni þess að togarinn á myndinni varð fyrir valinu að þessu sinni er það,- að nú eru rétt 60.ár frá stórbruna í skipinu. Togarinn var alveg nýr á þessum tíma og var að hefja sína aðra veiðiferð þegar bruninn varð. Hér verður ekki rakið í stórum dráttum hvað eyðilagðist í brunanum, en viðgerðinni var lokið og togarinn kominn til Íslands að nýju í öndverðum nóvember, sama ár þ.e.1952. Það tók því u.þ.b.1/2 ár að endurbyggja stórann hluta afturskipsins.
Þannig að þegar horft er til skipsins á myndinni hér að neðan að þá mætti hafa í huga að t.d yfirbyggingin er nokkrum mánuðum yngri en sjálfur skrokkurinn. Hafa sem sé ekki fylgst að allt frá upphafi útgerðar skipsins.

Á togslóð (C) Mynd: Hrafn Óskarsson
04.05.2012 13:35
Hvert skipanna er þetta?
Síðasta myndbirting virðist ekki vekja mikinn áhuga þannig að þá verður bara að reyna aftur. Og í framhaldinu er því einfaldlega spurt:
Hvert skipanna er hér á ferðinni? Skipið hefur vissulega sín einkenni.

(C) Mynd: Þórarinn H. Hallvarðsson
03.05.2012 21:41
Stórt spurt að þessu sinni!
Þar sem ekki verður mikið verið við tölvu og þá lyklaborðið, á föstudeginum og laugardeginum, verðum við að hafa eitthvað til að hugleiða á meðan slíkt ástand varir. Og þess vegna birtist ykkur hér mynd og einfaldlega spurt í framhaldi þess:
Hvert er skipið á myndinni og hvað er hér eiginlega í gangi??

Í breytingu erlendis (C) Mynd: Þorsteinn Gíslason
03.05.2012 10:03
Upphaf strandveiða.
Í gær, 2.maí hófust svokallaðar strandveiðar hér við land og að því tilefni verðum við að skoða okkur aðeins um upp undir fjöruborðinu.
Til þess notum við mynd, sem er saman sett úr tveimur myndum og hún var með þessu móti þegar síðunni barst myndin. Photoshop.
Það var vel þekkt hér á árum áður að erlendir togarar, og Íslenskir togbátar, toguðu sig upp í fjöru. Það er vissulega hægt að kalla slíkt "strandveiðar!"

Samsett mynd (C) Mynd: Sigfús Jóhannsson
Stundum er spurning hvenær eigi að birta sumar myndir og þessi varð fyrir valinu í tilefni af upphafi strandveiða.
